Gönguferð í Lónakot
23-04-2012 03:37
Gönguleiðin um Óttarstaðalandið býður upp á heillandi náttúru, auk húsarústa og hlaðinna garða, uppsátur og margt fleira sem minnir á búsetu og sögu liðinna alda. Þarna voru mörg kot og bjargræði sótt í sjó þegar gaf.

Rúmlega fimm tygir manns gengu heim að Lónakoti. Á bæjarhólnum, í veðurblíðu, var dregið fram kaffi og meðlæti, sagðar sögur og slappað af.
Góður rómur var gerður af ferðinni og leiðsögn Reynis og líklegt að margir eigi eftir að rata aftur á þessar slóðir.
Myndirnar voru teknar í ferðinni / kg
Gönguferð frá Straumi um Hraunin að Lónakoti
17-04-2012 16:39
Sunnudaginn 22. apríl verður næsta gönguferð FoNÁ. Gengið verður frá Straumi (bustabænum vestan við Straumsvík) um Hraunin að Lónakoti. Reynir Ingibjartsson höfundur bókanna 25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu og 25 gönguleiðri á Hvalfjarðarsvæðinu verður leiðsögumaður í ferðinni.
Þeir sem vilja vera með í samakstri frá Álftanesi geta mætt á bílastæðið framan við Íþróttamiðstöðina á Álftanesi klukkan eitt, en gangan hefst klukkan 13:30.
Allir eru velkomnir og leiðin greiðfær. Ætlunin er að staldra við í Lónakoti, rifja upp aðstæður og skoða ummerki búsetu í hrauninu. Tilvalið er að hafa með nesti og njóta í heimatúninu, þó ekki sé hægt að bjóða fólki inn í kaffi. Gera má ráð fyrir að ferðin taki 2 - 3 klst og gönguleiðin er u.þ.b. 5 km.
Þrjú félög standa að göngunni að þessu sinni, þ.e. Hraunavinir, Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla og FoNÁ

Kynningu á ferðinni, sem dreifa má að vild, má sækja 'hér'.
Stjörnubjart kvöld
23-01-2012 02:18
Afar vel rættist úr stjörnu'kvöldi' sem félögin tvö (FÁUSB og FoNÁ) efndu til í gær og lagðist þar allt á eitt.
Í Bessastaðakirkju mættu nær þrír tygir gesta og hlutuðu á Snævarr Guðmundsson, sem miðlaði okkur af mikilli kunnáttu og smitandi áhuga. Öllum til óblendinnar ánægju fór að rofa til í skýjarhulunni einmitt um það leyti sem Snævarr hafði lokið sínu fræðsluerindi í kirkjunni, en þungbúið hafði verið frá því um miðjan daginn og því afar tvísýnt um tilgang og áhuga fyrir seinni hluta dagskrárinnar. Engu að síður þáðu um helmingur gesta boð okkar í minnsta menningarhús höfuðborgarsvæðisins, Haukshús, endað lokkað með loforði um heitt kaffi / súkkulaði og þeir sem létu verða af því urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Veðurguðirnir sviptu skýjarhulunni frá svo stjörnuhimininn blasti við í allri sinni dýrð, skreyttur sveipum norðurljósa. Snævarr hélt áfram að fræða hópinn sunnan undir húsvegg við Haukshús og leiðbeindi okkur um hvelfinguna. Þar sem aðstæður voru eins og best er á kosið, stillt og stjörnubjart, var bara notalegt að æfa svokallað stjörnuhopp og rýna í stjörnumerkin eitt af öðru, kryddað góðum sögum og vísindalegum staðreyndum. Ekki sakaði að þarna gafst öllum tækifæri til að spyrja nánar út í ýmis atriði sem gjarnan eru ekki eru alveg augljós við fyrstu nálgun. Ylurinn af heitu súkkulaði stuðlaði eflaust að því að síðustu gestirnir voru að kveðjast þegar komið var fram undir miðnætti.
Sævarr Guðmundsson á þakkir okkar allra skyldar fyrir leiðsögnina og Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness þakkar gestum, samstarfsaðilum, velunnurum (kirkjuþjóni og fjölskyldunni sem annaðist veitingarnar) og Sveitarfélaginu Álftanes stuðninginn.

Dagskrá FoNÁ í janúar 2012
16-01-2012 16:31
Kynning á stjörnuhimninum og stjörnuskoðun
FoNÁ efnir til stjörnuskoðunar í samvinnu við Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla.
Dagskráin er opin öllum sem vilja meðan húsrúm leyfir og án endurgjalds.
Dagskráin hefst í Bessastaðakirkju, n.k. sunnudagskvöld 22. janúar klukkan 19:30 og þar mun Snævarr Guðmundsson landfræðingur kynna fyrir okkur stjörnuhimininn eins og hann birtist okkur í janúar.
Að fyrirlestri loknum verður farið vestur í Haukshús þar sem vænta má meira myrkurs. Ef veður leyfir verður þar rýnt í himinhvelfinguna og reynt að staðfesta og nefna það helsta sem sjá má og ræða um töfra stjarnanna.
Ætla má að dagskráin taki tvær klukkustundir, eða um klukkustundar viðveru á hvorum stað. Rétt er að hafa með sér sjónauka og þar sem kuldi getur smogið í merg og bein þegar fólk stendur kyrrt úti viljum við hvetja alla til að klæða sig vel. Í Haukshúsi verður heitt á könnunni og hægt að komast í skjól.
Auglýsing sem hentar til útprentunar er hægt að sækja hér [klikk] og má dreifa að vild.

Ganga samkvæmt dagskrá FoNÁ, í nóvember
04-11-2010 10:29
Gengið verður um Garða- og Gálgahraunið skv. dagskrá FoNÁ sunnudaginn 7. nóvember .
Lagt verður af stað frá anddyri Álftanessundlaugar, en þar er ætlunin að hittast klukkan 13 og samræma akstur til og frá Hraunsvík. Þaðan verður gengið eftir svokölluðum Fógetastíg, eins og leið liggur yfir hraunið. Hugsanlegir útúrdúrar verða ákveðnir á staðnum.
Veðurútlitið er gott! Allir eru velkomnir í gönguferðir FoNÁ.
Gott er að vera vel skóaður og göngustafir geta komið sér vel.
U.þ.b. klukkutíma ganga er yfir hraunið.

FJÖRUDAGUR FoNÁ 2010
25-08-2010 03:57
Fjörudagurinn 2010 verður sunnudaginn 29. ágúst í Bakkafjöru (kort).
Dagskráin hefst þar klukkan 13.
Sjávarlíffræðingar mæta á staðinn og eins og endranær eru allir velkomnir.
Tilvalið er að taka frá daginn, ganga með fjölskyldunni og vinum og skoða og njóta fjörunnar.
Stjórn FoNÁ

Ljósmyndakeppni FoNÁ
12-06-2010 07:55
Ákveðið hefur verið að efna til ljósmyndakeppni á vegum félagsins, í þriðja sinn.
Viðfangsefnið er að þessu sinni Sumar á Álftanesi 2010.
Nánari upplýsingar um keppnina kemur fram í auglýsingu sem má kalla fram [hér].
Öllum er velkomið að taka þátt.
Stjórn FoNÁ
Dagskrá FoNÁ 2010
10-06-2010 13:45
Sunnudaginn 13. júní verður farið í gönguferð Fugla- og náttúruverndarfélags Álftaness. Farið verður frá anddyri Álftaneslaugar klukkan 13 og gengið út að Skansi og litið eftir varpfuglum.
Bústjórinn á Bessastöðum veitti góðfúslegt leyfi til að fara inn í varplandið Bessastaðanes, enda verði viðeigandi tillitsemi sýnd í umgengni. Magnús Ó. Einarsson mun vísa leiðina.
Það er orðið nokkuð seint að leita fugla á hreiðrum því flest eru yfirgefin, en þess í stað má segja að fuglar sem eru að annast unga sína séu til marks um hversu vel varp hefur heppnast. FoNÁ vill hins vegar minna kattaeigendur á að fyrir lausaketti er nú uppgripstími og skortur á umsjón með þeim getur breytt miklu um hve margir ungar ná flugfærni.
Eins og ávallt eru allir velkomnir með í gönguferð FoNÁ og félagsmenn eru hvattir til að taka með gesti.
Dagskrá FoNÁ 2010
03-06-2010 14:43
Ákveðið hefur verið að fresta áformuðum viðburði í júní, sem vera átti n.k. sunnudag 6. júní skv. dagskrá árins 2010. Stefnt er að því að skoða varpfugla á Álftanesi sunnudaginn 13. júní, en nánari boð um það verða send öllum sem eru á póstlista félagsins og líka kynnt hér á vefsíðunni.
Stjórn FoNÁ
PS.
Við notum tækifærið og óskum sjómönnum og öðrum landsmönnum ánægjulegs sjómannadags
Hreinsunarátak á nesinu 2010
13-05-2010 07:10
Undanfarin ár hefur Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness tekið þátt í hreinsunarátaki á Álftanesi. Að þessu sinni var ákveðið að nota formiddaginn n.k. laugardag, 15. maí.
FoNÁ er boðið svæðið umhverfis Kasthúsatjörn. Það er vinsælt varpland fyrir andfugla og því hefur morgunstundin nýst bæði til að snyrta svæðið og í leiðinni verið ánægjulegt tilefni til að fylgjast með varpfuglunum. Þannig má líta á hreinsunardaginn sem einskonar árlegan utan-dagskrár-viðburð sem FoNÁ býður sínum félögum að taka þátt í. Með þessum orðum hvetjum við alla sem hafa tækifærið til að taka þátt í þessu með okkur. Allar upplýsingar um fyrirkomulag hreinsunarátaksins koma fram í eftirfarandi - sem er tekið upp úr skeyti frá Íþrótta- og tómstundafulltrúanum:
"Laugardaginn 15. maí er stefnt að því að halda hreinsunardaginn hér á Álftanesi og mun átakið standa frá c.a. 9:30 til 12:00.
Ykkar félag var þátttakandi í hreinsunarátakinu í fyrra og því þurfið þið að boða félagsmenn til þátttöku þann 15. maí hafið þið áhuga á að vera með. Félögunum sem stendur til boða að taka þátt í hreinsunardeginum að þessu sinni eru: Sóti , UMFÁ, Svanir, GÁ, Lions, Kvenfélagið, Smábátafélagið og Fugla- og náttúruverndarfélagið.
Miðað verður við að lágmarksþátttakendafjöldi frá hverju félagi sé 10 manns. Eins og við vitum vinna margar hendur létt verk.
Félögin munu fá greiddar kr. 40.000. fyrir áðurnefnda lágmarksþátttöku í hreinsunardeginum og síðan kr. 1000 fyrir hvern þátttakanda umfram 10.
Aðeins verður um skriflega skráningu að ræða, þ.e. allir sem mæta skulu skrá sig í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar áður en hreinsun hefst eða þá að hreinsun lokinni. Félög fá greitt samkvæmt þessari skráningu svo mikilvægt er að allir þátttakendur skrái sig. Hægt er að skrá sig í fleiri en eitt félag sé um það að ræða. Sem sagt sami einstaklingur telur sem félagi í t.d. Svönum og UMFÁ sé hann félagi í báðum félögum.
Mæta skal við íþróttamiðstöðina kl. 9:30. Þar fá menn úthlutað helstu verkfærum og pokum ásamt svæði til að hreinsa. Gott er að fá einhverja til að vera á bílum með kerrur til að auðvelda verkið.
Að loknu góðu dagsverki mæta menn síðan aftur við íþróttamiðstöð þar sem allir fá grillaðar pylsur og drykk en áætlað er að það verði um kl. 12:00."

Mbk, stjórn FoNÁ